Lögregla eykur eftirlit vegna Bíladaga

Mynd úr safni
Mynd úr safni

Nú fer fram hin árlega bæjarhátíð, Bíladagar á Akureyri. Fjöldi fólks hefur lagt leið sína til Akureyrar til að taka þátt í hátíðinni.

Lögreglan á Akureyri hefur aukið viðbúnað  á svæðinu öllu þessa helgi hvað varðar almennt eftirlit og umferðareftirlit bæði á merktum lögreglubifreiðum sem og ómerktum. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

Óhætt er að segja að hátíðin hafi verið umdeild undanfarin ár enda mikið um kraftmikla bíla á götum bæjarins í tengslum við Bíladaga. Langflestir þátttakenda á hátíðinni hegða sér með miklum sóma, fara að öllum reglum og sýna almenna tillitssemi. Þó hefur borið við að svartir sauðir hafa leynst innan um þátttakendur og gesti og komið þannig óorði á hátíðina. Lögreglan vill því minna fólk á að fylgja reglum um umferðarhraða sem og almennum umferðarreglum.

Í tengslum við Bíladaga á Lögreglan í góðu samstarfi við Aflsið, samtök um heimilis- og kynferðisofbeldi, Akureyrarstofu, Bílaklúbb Akureyrar, framkvæmdamiðstöð Akureyrarbæjar  um að framkvæmd og eftirlit á Bíladögum verði með sem bestum hætti.

Siðareglur Bíladaga:

  • Við göngum (keyrum) vel um bæinn okkar, jafnt gestir sem heimamenn.
  • Virðum hámarkshraða í íbúðarhverfum sem og á vegum úti.
  • Við spólum einungis á akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar.
  • Gestir Bíladaga eru jákvæðir og þar af leiðandi þrælskemmtilegir.
  • Við berum virðingu fyrir náunganum og tökum höndum saman um að gera Bíladaga frábæra.
  • Gestir Bíladaga ganga snyrtilega um umhverfi sitt.

Nýjast