Tvær ljósmæður sem sögðu upp starfi sínu á Sjúkrahúsinu á Akureyri vegna kjaradeilu ljósmæðra við ríkið hafa dregið uppsagnir sínar til baka. Þetta kemur fram í pistli Bjarna Jónassonar forstjóra SAk á vef sjúkrahússins.
Ljósmæður samþykktu miðlunartillögu nýverið eftir langar og harðar deilur við stjórnvöld, en ríkissáttarsemjari hefur skipað gerðardóm í deilu Ljósmæðrafélags Íslands og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs.
„Það er mikill léttir að sátt hefur náðst í kjaradeilu ljósmæðra og ríkisins. Fæðingarþjónusta og þjónusta við þungaðar konur færist vonandi í fyrra horf sem fyrst. Ekki varð mikil röskun á starfseminni hér vegna yfirvinnubannsins en sækja þurfti um undanþágur til að tryggja viðeigandi mönnun meðan á því stóð,“ skrifar Bjarni Jónasson.