Líf og fjör í Vísindaskóla unga fólksins

Tilraunaeldhúsið – Hvað er matur? Mynd: unak.is
Tilraunaeldhúsið – Hvað er matur? Mynd: unak.is

Það var líf og fjör í hátíðarsal Háskólans á Akureyri (HA) á síðastliðinn föstudag  en þá útskrifuðust alls 87 nemendur frá Vísindaskóla unga fólksins. Frá þessu er greint á vef HA.

Þetta er í þriðja sinn em Vísindaskólinn er haldinn og stendur hann yfir í eina viku í senn. Að þessu sinni lærðu nemendur að búa til hljóðfæri, kynntu sér grunnatriði í forritun, unnu í tilraunaeldhúsi, lærðu grunnatriði í umhverfismálum og kynntu sér breytileika mannfólksins, með áherslu á við séum ekki öll eins.

Vísindaskólanum er ætlað að vekja áhuga ungs fólks á aldrinum 11-13 ára á námi á háskólastigi. Flest börnin koma frá Eyjafjarðarsvæðinu en einnig eru dæmi um að börn komi lengra að.

„Ég veit að afar og ömmur sem búa hér á Akureyri eru að fá barnabörn í heimsókn og eru þannig að slá tvær flugur í einu höggi. Njóta samveru með barnabörnum í eina viku og bjóða þeim upp á áhugaverða dagskrá í Vísindaskólanum“, segir Sigrún Stefánsdóttir, skólastjóri Vísindaskólans. 

Skólinn hefur frá upphafi fengið mikilvægan stuðning frá ýmsum aðilum í nærsamfélaginu og segir Sigrún hann ómetanlegan. Nú er undirbúningur fyrir Vísindaskóla unga fólksins vorið 2018 rétt í þann mund að hefjast.

 

Nýjast