Í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna miðvikudaginn 8. mars n.k. er boðað til hádegisfundar að Borgum við Norðurslóð á Akureyri frá kl. 11.45-13.15. Fyrirlesarar verða Ingibjörg Auðunsdóttir, Arnar Már Arngrímsson og Karólína Rós Ólafsdóttir. Umfjöllunarefni fundarins er líðan ungs fólks.
Fundarstjóri er Kristín Sóley Björnsdóttir. Allir hjartanlega velkomin og eru frjáls framlög vel þegin. Félagar úr Femma (Femínistafélagi MA) selja boli til styrktar Aflinu 2000 kr. stykkið.
Að fundinum standa: Zontaklúbburinn Þórunn hyrna, Zontaklúbbur Akureyrar og Jafnréttisstofa. Boðið verður upp á léttar veitingar fyrir fund en formleg dagskrá hefst kl. 12:00.