Leikskóladeild verður starfrækt í Glerárskóla

Glerárskóli.Mynd/akureyri.is
Glerárskóli.Mynd/akureyri.is

Nú hefur verið tekin sú ákvörðun að 5 ára leikskóladeild verði starfrækt í húsnæði Glerárskóla næsta skólaár. Deildin verður undir stjórn leikskólans Tröllaborga. Frá þessu er greint á vef Akureyrarbæjar.

Öllum foreldrum barna sem fædd eru 2012 og eiga lögheimili í skólahverfi Glerárskóla var sent bréf þar sem þeim var boðið á kynningu þessarar deildar. Fundurinn var haldinn síðasta þriðjudag og eru nú þegar farnar að berast umsóknir um leikskólapláss á deildinni.

Sjá einnig: 5 ára deild fyrir leikskólabörn í Glerárskóla

Rétt er að taka fram að hér er um að ræða nýjan valkost fyrir foreldra 5 ára barna í Glerárskólahverfi. Þeir foreldrar sem hafa áhuga á að skrá börn sín í þessa nýju deild þurfa að sækja um það sérstaklega.

Einnig voru skoðaðar hugmyndir um að opna sambærilega deild í Síðuskóla en af því verður ekki að sinni.

Vonast er til að með þessum hætti verði hægt að mæta aukinni þörf fyrir leikskólapláss haustið 2017.

Ítarleg umfjöllun um málið má nálgast í prentútgáfu Vikudags sem kemur út í dag. Þar er m.a. rætt við fræðslustjóra Akureyrarbæjar.

- Vikudagur, 8. júní 2017

 

Nýjast