Laun unglinga í Vinnuskólanum hækka um 10%

Mynd/Þröstur Ernir
Mynd/Þröstur Ernir

Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt að laun unglinga í Vinnuskóla Akureyrarbæjar í sumar hækki um 10%. Þannig fá 14 ára unglingar 501 kr. á tímann, 15 ára fá 572 kr. á tímann og 16 ára unglingar 751 kr. Bæjarráð samþykkti einnig að hámarksfjöldi tíma verði 105 tímar fyrir 14 ára, 180 fyrir 15 ára og 240 tímar fyrir 16 ára.

 

Nýjast