Kviknaði í bíl á Hlíðarfjallsvegi

Slökkvistarf stendur enn yfir. Mynd/Lögreglan
Slökkvistarf stendur enn yfir. Mynd/Lögreglan

Lögreglan á Akureyri fékk tilkynningu um eld í bifreið á Hlíðarfjallsvegi á fimmta tímanum í dag. Bifreiðin var alelda þegar lögregla og slökkvilið komu á staðinn og stendur slökkvistarf nú yfir. Ökumaður komst út úr bifreiðinni og varð ekki meint af. Hlíðarfjallsvegur er lokaður við Hálönd á meðan slökkvistarf fer fram, segir á Facebook vef lögreglunnar.

Nýjast