Á laugardaginn kemur þann 23. nóvember kl. 16:00 taka Akureyringar formlega við jólatrénu sem vinabærinn Randers í Danmörku gefur þeim að venju og verður ýmislegt til gamans gert, er fram kemur á vef Akureyrarbæjar.
Lúðrasveit Akureyrar spilar jólalög frá kl. 15:45 undir stjórn Sóleyjar Einarsdóttur. Um klukkan 16:00 kútveltast jólasveinarnir kafrjóðir og blaðskellandi inn á Ráðhústorg og heilsa upp á bæjarbúa. Eva Egesborg Hansen, sendiherra Dana á Íslandi, og Helgi Jóhannesson, konsúll Dana á Akureyri, afhenda jólatréð með formlegum hætti og Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, flytur ávarp.
Alexandra Maren Ásgeirsdóttir Lie, tveggja og hálfs árs, tendrar ljósin á jólatrénu fyrir hönd Norræna félagsins á Akureyri og nýtur við það aðstoðar Evu og Ásthildar. Jólasveinarnir syngja sígild jólalög með viðstöddum og gefa að lokum hollt góðgæti.