Linda Lárusdóttir, þroskaþjálfi á Akureyri, hefur undanfarna mánuði kannað grundvöll fyrir því að koma á laggirnar ungbarnaleikskóla í bænum. Mikil umræða hefur verið í samfélaginu um vistunarvanda ungra barna og leikskólamál almennt á Akureyri. Mörg börn komast ekki á leikskóla vegna plássleysis og dæmi eru um að börn séu orðin tveggja og hálfs árs þegar þau fá loksins pláss. Þá er löng bið eftir dagmömmum.
„En burtséð frá dagvistunarvanda Akureyrarbæjar er það einfaldlega mín skoðun að nauðsynlegt sé að foreldrar hafi val um hvort þeir sendi börn sín til dagforeldra eða á ungbarnaleikskóla. Ég hef sjálf ekkert á móti dagforeldrum og tel það henta mjög vel fyrir marga. En það kerfi hefur þó ákveðna vankanta,“ segir Linda.
„Önnur ástæða fyrir því að mig langar að fara út í rekstur ungbarnaleikskóla er uppeldisstefna sem kallast RIE/respectful parenting. Stefnan hefur notið vaxandi vinsælda hér á landi síðustu misseri. Ég heyrði fyrst af þessari stefnu um áramót og hef smám saman verið að kynna mér hana og tileinka mér aðferðir hennar með stelpuna mína sem er 20 mánaða. Ég hef hrifist mjög af stefnunni, sé góðan árangur og langar mikið að vinna með þessa stefnu í starfi með börnum,“ segir Linda.
Þarf aðkomu Akureyrarbæjar
Linda segist hafa skoðað málin vel og eftir að hafa rætt við ýmsa aðila segir hún áhuga fyrir hendi á ungbarnaleikskóla. Málið sé þó ekki einfalt og því fylgi mikill kostnaður. „Það er töluvert dýrara að reka ungbarnaleikskóla en almennan leikskóla því að yngstu börnin þurfa meiri umönnun og því fleiri starfsmenn. Auk þess þarf að vera ákveðið menntunarstig í leikskólum og stjórn, sem leiðir til þess að starfsmannakostnaður er mjög hár. Leikskólinn þyrfti að gera samning við Akureyrarbæ, svipað og Hjallastefnan hefur gert í rekstri Hólmasólar en sambærilegur samningur dugar ekki til við rekstur ungbarnaleikskóla,“ segir Linda.
„Ég veit af mörgum áhugasömum," segir Linda Lárusdóttir
Börn frá 9 mánaða aldri
Ungbarnaleikskólinn myndi taka við börnum frá 9 mánaða upp í 3ja ára aldur. „Mig langar að vinna að því að setja upp rekstraráætlun, bæði fyrir stærri ungbarnaleikskóla en líka leikskóla með ungbarnadeild, og sjá hvort dæmið gangi upp. Það er margt annað sem þarf að huga að við stofnun leikskóla eins og t.d. að finna hentugt húsnæði,“ segir Linda. „Það skiptir mig miklu máli að leikskólinn yrði algjörlega í anda RIE. Það er að segja, öll aðstaða og leikföng jafnt inni sem úti sem og uppeldisaðferðir,“ segir Linda.
Næstu skref séu að kanna alla möguleika og frekari grundvöll fyrir hugmyndinni. „Ég veit af mörgum áhugasömum sem standa með mér en ég hef verið að svipast um eftir einhverjum með leikskólakennaramenntun og jafnvel stjórnunarþekkingu sem geti aðstoðað mig í ferlinu, t.d. við vinnu á námsskrá og starfsáætlun leikskólans og öllu utanumhaldi. Það er auðvitað mikil vinna framundan en hér opnast góðir starfsmöguleikar í ótrú lega spennandi verkefni,“ segir Linda.