Kalla eftir konum í sumarstörf

Umhverfismiðstöð vill jafna kynjahlutfall starfsmanna. Mynd/Þröstur Ernir
Umhverfismiðstöð vill jafna kynjahlutfall starfsmanna. Mynd/Þröstur Ernir

Umhverfismiðstöð Akureyrarbæjar leggur sérstaka áherslu á að ráða konur til starfa í sumar og jafna þannig kynjahlutföllin. Búið er að opna fyrir umsóknir um sumarstörf hjá Akureyrarbæ en á heimasíðu bæjarins segir að fram til þessa hafi karlar verið yfirgnæfandi meirihluti starfsfólks Umhverfismiðstöðvar.

Í auglýsingunni frá Umhverfismiðstöð segir meðal annars: „Tekið verður tillit til samþykktar bæjarstjórnar Akureyrar um jafnréttismálvið ráðningu í störfin en sérstök áhersla er á að fjölga konum í störfum á Umhverfismiðstöð. Vísað er til 26. gr. jafnréttislaga þar sem kveðið er á um að heimilt sé að auglýsa sérstaklega eftir öðru kyninu ef tilgangur auglýsanda er að stuðla að jafnari kynjaskiptingu innan starfsgreinarinnar.“

Umhverfismiðstöð sér m.a. um umhirðu bæjarlandsins en þá er átt við götur og gangstéttir, garða og opin svæði. Tekið er á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar.

Nýjast