Bæjarráð Akureyrar kallar eftir því að forsvarsmenn ISAVIA sem og formaður samgönguráðs mæti til fundar við bæjarstjórn þar sem farið verði yfir frekari framkvæmdir við Akureyrarflugvöll sem nauðsynlegar eru bæði með tilliti til innanlands- og millilandaflugs.
Akureyrarflugvöllur hefur verið mikið í umræðunni undanfarna daga þar sem aðbúnaður fyrir millilandaflug þykir ábótavant og rýmið í flugstöðinni of lítið.
Í ályktun bæjarráðs er fagnað tilkomu millilandaflugs um Akureyrarflugvöll í tengslum við ferðir ferðaskrifstofunnar Super Break sem hófust í síðastliðinni viku.
„Því miður hefur dregist úr hófi að koma upp viðeigandi aðstöðu á flugvellinum og skorar bæjarráð á þingmenn, ríkisstjórn, samgönguráð og ISAVIA að grípa nú þegar til ráðstafana sem nauðsynlegar eru til að styðja við og tryggja í sessi millilandaflug um Akureyrarflugvöll. Í því sambandi er brýnt að þegar verði komið upp ILS búnaði (Instrument Landing System) við völlinn og lýsa bæjaryfirvöld yfir fullum vilja til samstarfs við uppsetningu búnaðarins,“ segir í ályktun.
Er bæjarstjóra falið að boða hlutaðeigandi til fundar svo fljótt sem verða má.