Norðurorka hf. á Akureyri vinnur nú að því í samvinnu við Vaðlaheiðargöng hf. að nýta kalda vatnið úr jarðgöngunum um Vaðlaheiði sem neysluvatn fyrir Akureyringa. Miðað er við að taka 70 lítra á sekúndu. Vatnsmagnið fer nærri því að fullnægja allt að helmingi notkunar bæjarbúa á köldu vatni.
Kaldavatnsþörfin á Akureyri er samkvæmt vef Norðurokru 180-200 sekúndulítrar yfir daginn en lágrennsli fer niður í um 70 sekúndulítra yfir nóttina.Liður í frágangi ganganna er að leiða kalt og heitt vatn út úr göngunum og segir Hjalti Steinn Gunnarsson, tæknifræðingur hjá Norðurorku, á vef fyrirtæksins að unnið hafi verið að því á undanförnum vikum. Norðurorka hefur útbúið safnkerfi í misgenginu þar sem vatnið sprettur fram.
Búið er að steypa safnþró og verður vatnið leitt úr henni röskum 6 km leið út úr göngunum og áfram aðra 4-5 km til Akureyrar. Kalda vatnið úr Vaðlaheiðargöngum mun í framtíðinni nýtast notendum á Akureyri og Svalbarðsströnd.
Kalt neysluvatn Akureyringa kemur að stærstum hluta úr annars vegar Hesjuvallalindum og hins vegar Sellandslindum ofan Akureyrar. Köldu vatni er einnig dælt frá Vöglum í Hörgárdal. Stefnt er að því að tengja uppsprettuna í úr Vaðlaheiðrgöngunum við vatnsveituna á Akureyri árið 2020.
-þev