Innleiðing barnasáttmála UNICEF í Hofi

Þingið fer fram í Hof. Mynd/Auðunn Níelsson
Þingið fer fram í Hof. Mynd/Auðunn Níelsson

Hafin er vinna við innleiðingu barnasáttmála UNICEF á Akureyri, fyrsta sveitarfélaginu á Íslandi, og er stefnt að því að gera bæinn að ennþá barnvænna samfélagi en nú er. Frá þessu er greint á heimasíðu Akureyrar.

„Í dag, föstudaginn 1. desember, verður haldið stórþing ungmenna á Akureyri í Hofi. Þingið er ætlað unglingum á unglingastigi grunnskóla og yngstu tveimur árgöngum framhaldsskóla. Fulltrúar úr öllum grunnskólum Akureyrarkaupstaðar verða á þinginu ásamt fulltrúum úr báðum framhaldsskólum Akureyrar. Yngri börn; leikskólastig, yngsta stig og miðstig grunnskóla vinna verkefni sem tengjast barnvænu samfélagi í skólum sínum,“ segir á heimasíðu Akureyrar.

Viðfangsefni þingsins er tvíþætt; annars vegar fræðsla og hins vegar verður farið í vinnuhópa þar sem rædd verður staða ungmenna í sveitarfé­
laginu og dregin upp mynd af því sem betur má fara en einnig hvað vel er gert. Niðurstöður umræðna verða lauslega kynntar í lok þingsins um kl.
13.20. Áætlað er að lokaniðurstöður verði kynntar með formlegum hætti í lok apríl og þá frá öllum skólastigum.

Dagskrá þingsins í aðalatriðum:

11.00: Ávarp frá bæjarstjóra og þing sett

11.15: Fræðsla frá UNICEF um barnasáttmálann

12.00: Farið í vinnuhópa og unniðmeð spurningarlista undir handleiðslu umræðustjóra

13.20: Niðurstöður þingsins kynntar lauslega

Nýjast