Á aðalfundi KA sem fór fram í gær var Ingvar Már Gíslason kjörinn nýr formaður félagsins en Hrefna G. Torfadóttir lét af störfum. Hún hefur verið formaður frá árinu 2010. Ingvar hefur undanfarin ár gegnt hlutverki varaformanns félagsins. Frá þessu er grein á vef KA.
Gunnar Níelsson hætti einnig í aðalstjórn og í stað þeirra Gunnars og Hrefnu koma nýir inn í aðalstjórn þeir Eiríkur S. Jóhannsson og Pétur Ólafsson. Aðalstjórn KA er því skipuð eftirfarandi:
Ingvar Már Gíslason, formaður
Eiríkur S. Jóhannsson, varaformaður
Sigríður Jóhannsdóttir, gjaldkeri
Helga Þyri Bragadóttir, ritari
Pétur Ólafsson, meðstjórnandi
Á heimasíðu KA segir að Ingvar þakki traustið og sagði að framundan væru spennandi tímar í félaginu. KA væri orðið langfjölmennasta félag bæjarins og nú væri komið að uppbyggingartímum á félagssvæði KA. Við tækju samningaviðræður við Akureyrarbæ um uppbyggingu mannvirkja hér á svæðinu og er framtíðarnefnd félagsins búin að skila af sér ákveðnum hugmyndum um framtíð félagsins.