Íbúum á Akureyri fjölgað um 220 á árinu

Að undanförnu hefur íbúum Akureyrar fjölgað jafnt og þétt. Í byrjun október bjuggu 18.710 manns á Akureyri og hafði íbúum sveitarfélagsins fjölgað um 220 á fyrstu 9 mánuðum ársins. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu íbúðarlánasjóðs.

Til samanburðar fjölgaði íbúum um 140 á sama tíma 2016. Búast má við því að fjölgun íbúa á svæðinu hafi ýtt undir aukna eftirspurn eftir húsnæði. Það skýrir að einhverju leyti verð­hækkunina á fasteignamarkaðinum eins og Vikudagur greindi frá fyrir skemmstu. 

Nýjast