Íbúar Norðurþings orðnir 3.000 talsins

Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings færði þrjúþúsundasta íbúanum gjöf frá sveitarfélag…
Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings færði þrjúþúsundasta íbúanum gjöf frá sveitarfélaginu. Mynd/nordurthing.is

Íbúar Norðurþings eru nú orðnir þrjú þúsund talsins. Þegar þau Sveinbjörn Árni Lund og Tinna Ósk Óskarsdóttir eignuðust sinn annan son þann 19. maí síðastliðinn náðu íbúar Norðurþings þessum áfanga. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu sveitarfélagsins

Í tilefni þessara tímamóta  færði Kristján Þór Magnússon sveitarstjóri fjölskyldunni örlítinn viðurkenningarvott frá sveitarfélaginu.

„Það er ósk sveitarfélagsins að gæfan fylgi drengnum, sem enn hefur ekki fengið nafn og foreldrum hans um ókomna framtíð og að vel takist til við þjónustu við fjölskylduna, sem og aðra íbúa Norðurþings, hér eftir sem hingað til,“ segir í tilkynningunni.

Nýjast