HR og HA í samstarf um BSc-nám í tölvunarfræði

Háskólinn á Akureyri og Háskólinn í Reykjavík mun bjóða upp á BSc-nám í tölvunarfræði á Akureyri frá og með næsta vetri, í samstarfi við Háskólann á Akureyri. Háskólarnir hafa verið í samstarfi um tveggja ára diplómanám í tölvunarfræði undanfarin tvö ár og munu fyrstu nemendurnir sem stundað hafa diplómanámið í tölvunarfræði á Akureyri, í samstarfi HR og HA, útskrifast í vor.

Nám í tölvunarfræði á Akureyri er sveigjanlegt nám, að hluta fjarnám og að hluta staðarnám. Fyrirlestrar eru haldnir í HR og teknir upp og hlaðið á netið eða streymt í kennslustofu í HA. Verklegir tímar og dæmatímar eru hins vegar haldnir í Háskólanum á Akureyri og nemendur njóta í þeim aðstoðar kennara á staðnum. „Með því að bjóða nám í tölvunarfræði á Akureyri, í samstarfi við HA, viljum við koma til móts við nemendur sem búsettir eru á Norðurlandi og jafnframt svara kalli atvinnulífsins eftir fleiri sérfræðingum á sviði upplýsingatækni,“ segir Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, í tilkynningu. „Það er okkur mikil ánægja að geta nú boðið nemendum okkar að ljúka grunnnámi í tölvunarfræði á Akureyri.“

Tölvunardeild Háskólans í Reykjavík er stærsta tölvunarfræðideild landsins. Árið 2016 brautskráðust 189 nemendur frá deildinni. Deildin hefur allt frá stofnun lagt metnað í að útskrifa vel menntað og hæft starfsfólk fyrir upplýsingatæknigeirann ásamt því að undirbúa nemendur fyrir frekara nám. Í dag stunda yfir 800 nemendur nám við deildina á fjölbreyttum sviðum upplýsingatækni, s.s. tölvunarfræði, tölvunarstærðfræði, upplýsingastjórnun og hugbúnaðarverkfræði.

Nýjast