Hótelbyggingu mögulega seinkað en ekki hætt við

Óvíst er hvenær Sjallinn verður að hóteli. Mynd/Hörður Geirsson
Óvíst er hvenær Sjallinn verður að hóteli. Mynd/Hörður Geirsson

Eins og greint var frá í Morgunblaðinu sl. helgi munu stjórn­end­ur Íslands­hót­ela end­ur­skoða áform um upp­bygg­ingu hót­ela í Reykja­vík og á lands­byggðinni ef virðis­auka­skatt­ur á ferðaþjónustu hækk­ar í 24%. Kostnaður við um­rædd verk­efni hleyp­ur á millj­örðum króna. Meðal þeirra eru áform um stækk­un Grand hót­els og nýtt hót­el á lóð Sjall­ans á Akureyri.

Davíð Torfi Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandshótela, segir í svari við fyrirspurn Vikudags að félagið geri ekki ráð fyrir því að hætta við hótelbyggingu. „En hins vegar gætu dagsetningar eitthvað breyst,“ segir Davíð Torfi.

Áætlað var að hefja framkvæmdir á þessu ári og opna vorið 2019. Verði umræddar breytingar á virðisaukaskatti að veruleika er að ljóst að framkvæmdum verði frestað um óákveðin tíma.

Eins og Vikudagur greindi frá í vetur sömdu Íslandshótel við arkitektastofuna Kollgátu um hönnun á allt að 120 herbergja hóteli í miðbæ Akureyrar á reit sem kenndur er við Sjallann. Hótelið mun verða rekið undir nafni Fosshótela. 

Nýjast