Hnífaburður eykst á Akureyri

Færst hefur í vöxt að fíkniefnaneytendur á Akureyri séu með vopn á sér .
Færst hefur í vöxt að fíkniefnaneytendur á Akureyri séu með vopn á sér .

Færst hefur í vöxt að fíkniefnaneytendur á Akureyri séu með vopn á sér og þá eru það helst hnífar sem um er að ræða. „Það er orðið mjög algengt að þeir aðilar sem við höfum afskipti af vegna fíkniefnamála séu með vopn á sér,“ segir Gunnar Jóhannsson rannsóknarlögreglufulltrúi á Akureyri. Hann segir algengast að um einhversskonar hnífa sé að ræða, allt frá eldhúshnífum og litlum vasahnífum upp í stærri hnífa.

„Þetta er sífellt að verða algengara. Oft eru þeir einnig með barefli á sér eins og hafnaboltakylfu eða hnúajárn. Allir hafa þeir sömu sögu að segja; þetta sé þeim til varnar svo þeir geti varið sig ef á þá er ráðist. Það eru alltaf miklar væringar í gangi á milli fíkniefnaneytenda og þeir eru iðulega í allskonar deilum útaf öllu og engu.“

Gunnar segir lögregluna hér ekki hafa orðið vart við skotvopn í fíkniefnaheiminum. „Sem betur fer ekki. Einstaka sinnum hefur komið fyrir að þessi aðilar hafa verið með loftbyssur sem hafa þá iðulega verið keyptar erlendis. Slíkt er alltaf haldlagt og gert upptækt. Þessar loftbyssur eru þá yfirleitt jafnframt eftirlíkingar af raunverulegum byssum.“

Um páskana varð alvarleg líkamsárás í Kjarnaskógi þegar maður var stunginn með hnífi í lærið og mátti litlu muna að illa færi. Spurður hvort aukin vopnaburður sé merki um að meiri harka sé að færast í heim fíkniefnanna á Akureyri segir Gunnar: „Það er svo sem engin stökkbreyting hvað þetta varðar, heldur hefur þetta verið að aukast hægt og rólega.“

Hann segir lögregluna vera vel í stakk búna til að takast á við aukin vopnaburð. „Við erum með ýmis tæki og tól til að glíma við þetta og lögreglumenn eru mjög meðvitaðir um þá staðreynd að þessir einstaklingar eru yfirleitt vopnaðir,“ segir Gunnar.

Nýjast