Hlynur – félagsheimili eldri borgara á Húsavík og nágrenni

Jón Ingólfsson skar fyrstu sneiðina af hátíðartertunni í Hlyn. Mynd: JS
Jón Ingólfsson skar fyrstu sneiðina af hátíðartertunni í Hlyn. Mynd: JS

Félagsmiðstöð eða félagsheimili Félags eldri borgara á Húsavík og nágrenni var formlega opnað með kaffisamsæti s.l. sunnudag. Að sjálfsögðu hefur því verið gefið nafnið Hlynur, enda húsið að Garðarsbraut 44 jafnan gengið undir því nafni frá því Steingrímur  Birgisson  og Karítas Halldórsdóttr byggðu það 1964 og opnuðu húsgagnaverslun og verkstæði með því hlýlega heiti.

Húsnæðið sem félagið festi formlega kaup á í apríl í fyrra fyrir 32 milljónir króna, er 224 fermetra jarðhæð og 90 fermetra kjallari og suðurendinn hefur verið leigður Rauða krossinum til þriggja ára. Salurinn tekur yfir 100 manns í sæti, þar er rúmgott og vel tækjum búið eldhús, snyrtingar og geymsla. Á veggjum hanga myndir og málverk sem flest  hafa verið gefin félaginu. Í glugga í suðurenda hefur verið letrað ljóð Hákons Aðalsteinssonar „Bærinn minn,“ og það er eins og flestir vita sungið við lag eftir einmitt Steina í Hlyn. Félagsmiðstöðin verður opin þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl 13-16.

Anna  Sigrún Mikaelsdóttir, formaður félagsins ávarpaði gesti, en um 120 manns litu inn þennan dag og þáðu kaffiveitingar.

„Hér hefur verið unnið  þrekvirki hvað endurbætur á húsnæðinu varðar og  sjálfboðavinna  hefur verið gríðarleg.  Margir hafa stutt verkefnið, gefið peninga, bæði félagsmenn og aðrir og einnig félög og fyrirtæki innanhéraðs sem utan og jafnvel utan landsteinanna.“ Sagði formaðurinn.

Gjaldkerinn Eiður Árnason fór yfir framkvæmdasöguna og sagði að hugmyndin um að félagið keypti eigið húsnæði hefði kviknað í hópi manna sem unnu við endurbætur á Snælandi þegar félagið leigði það húsnæði og Jón Ingólfsson hefði fyrstur vakið máls á þessu í janúar í fyrra.

Fjölmargir hafa komið að því að standsetja húsnæðið en Eiður sagði að af öllum öðrum ólöstuðum þá hefðu þeir Eggert Jóhannsson, Pétur Pétursson og Jón Ingólfsson verið í farabroddi sjálfboðaliða frá fyrsta degi. Hann færði þeim þakkir, sem og öðrum sem hönd hafa lagt á plóginn í Hlyn.

Nánari umfjöllun er í Skarpi sem kom út í dag. JS

 

Nýjast