Undanfarin misseri hefur umræðan um gjaldfrjáls námsgögn í grunnskólum farið vaxandi. Barnaheill settu af stað undirskriftasöfnun á síðasta ári til að þrýsta á um að réttindi barna til gjaldfrjálsrar grunnmenntunar verði virt. Fyrr í vetur fengu stjórnvöld undirskriftalistann afhentan en hátt í sex þúsund manns skrifuðu undir.
Sjá einnig: Barnaheill safna undirskriftum
Fræðsluráð Akureyrarbæjar hefur nú tekið málið til umfjöllunar. Fræðsluráð lagði til á fundi sínum í vikunni að öllum grunnskólabörnum í grunnskólum Akureyrarbæjar verði veittur hluti nauðsynlegra námsgagna (s.s. ritföng, stílabækur, límstifti, möppur og einfaldir vasareiknar) þeim að kostnaðarlausu frá og með hausti 2017. Áætlaður kostnaður vegna þessa er um 16 milljónir króna.
„Akureyrarbær hefur undirritað samning um að verða barnvænt sveitarfélag og hefur nú hafið innleiðingu að barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Gjaldfrjáls námsgögn eru liður í því að vinna gegn mismunun barna og því að börn njóti jafnræðis þegar að námi kemur,“ segir í bókun fræðsluráðs.
Erindinu var vísað til bæjarráðs til afgreiðslu.