Hestur slasaðist vegna nagla í reiðvegi

Hesturinn hlaut sár eftir að hafa stigið á naglann.
Hesturinn hlaut sár eftir að hafa stigið á naglann.

Hestur hefur verið færður til meðhöndlunar dýralæknis á Akureyri eftir að hafa fengið nagla upp í hófbotninn. Greint er frá þessu á vef Hestamannafélagsins Léttis á Akureyri en atvikið átti sér stað fyrir helgi.

Á vef Léttis segir í tilkynningu frá stjórn félagsins að óttast hafi verið að slíkt myndi gerast vegna þess að efnið sem sett var í reiðveginum fyrir nokkru síðan, „er mikið blandað alskonar drasli, nöglum, glerbrotum og fleira og stórhættulegt hestaumferð,“ en greint var frá því í Fréttablaðinu á dögunum að gler og allskyns óáæskilegir hlutir hafi fundist í reiðveginum. 

Síðustu daga hafa forustumenn hestamanna á Akureyri verið í viðræðum við bæjaryfirvöld vegna þessa ofaníburðar.

Hér má sjá naglann sem hesturinn steig á.

 

„Eftir samtöl okkar í morgun við forsvarsmenn bæjarins þar sem við tilkynntum þeim slysið frá í gær var það endanlega ákveðið að yfirborð reiðvega á Akureyri þar sem þetta mengaða efni er verður fjarlægt eins fljótt sem auðið er,“ segir á vef Léttis.

Eru hestamenn menn beðnir um að fara varlega á þeim reiðvegum  þar sem efnið hefur ekki verið fjarlægt. Stefnt er að því að keyra nýju hestvænu efni í yfirborð reiðvega þessari viku. 

Nýjast