Héraðsskjalasafninu á Akureyri færðar gjafir fyrir gesti safnsins

F.v. Helgi Örlygsson, Aðalbjörg Sigmarsdóttir, Eiður Gunnlaugsson. Mynd: herak.is
F.v. Helgi Örlygsson, Aðalbjörg Sigmarsdóttir, Eiður Gunnlaugsson. Mynd: herak.is

Héraðsskjalasafninu á Akureyri var færð góð gjöf nú í vikunni, en það var borðtölva og skanni til notkunar fyrir gesti safnsins á lestrarsal.  Gefendur voru Nýja kaffibrennslan og Kjarnafæði á Akureyri og er fyrirtækjunum einlæglega þakkað fyrir góðar gjafir..

Ónefndur hollvinur og dyggur notandi safnsins hafði fundið til þess að þessi tæki vantaði, þar sem þægilegt gæti verið að geta sjálfur skannað þau skjöl sem verið væri að skoða og getað tekið þau þannig með sér. Hann hafði síðan forgöngu um það að áðurnefnd fyrirtæki keyptu þessi tæki og gáfu safninu.  

Það voru þeir Helgi Örlygsson hjá Nýju kaffibrennslunni og Eiður Gunnlaugsson hjá Kjarnafæði sem afhentu gjafirnar

Nýjast