Þessi glæsilegi barnahópur hélt á dögunum tombólu til styrktar Björgunarsveitinni Garðari. Alls söfnuðust 19. 739 krónur. Börnin afhentu fulltrúum björgunarsveitarinnar styrkinn fyrir utan skrifstofu Skarps á þriðjudag. Eins og allir vita eru björgunarsveitirnar háðar velvilja almennings hvað fjáröflun varðar og mættu sem flestir taka sér þessi sóma börn sér til fyrirmyndar.