Heitar umræður um byggð í Kotárborgum

Á myndinni er búið að merkja inn áætlaða íbúabyggð í Kotárborgum.
Á myndinni er búið að merkja inn áætlaða íbúabyggð í Kotárborgum.

Tryggvi Már Ingvarsson, formaður skipulagsnefndar Akureyrarbæjar, segir að sú heita umræða um svæðið í kringum Kotárborgir og suður að Pálmholti hafi komið sér á óvart. Eins og Vikudagur hefur greint frá eru íbúar í Gerðahverfi á Akureyri og nálægum svæðum eru uggandi yfir fyrirhuguðum framkvæmdum í Kotárborgum. Í nýju aðalskipulagi Akureyrarbæjar er gert ráð fyrir nýju hverfi í Kotárborgum og að þar muni rísa alls 260 nýjar íbúðir.

Á kynningarfundi vegna nýs aðalskipulags sem fram fór í Hofi á þriðjudaginn var kom fram andstaða við áform bæjarins um uppbyggingu íbúða við Kotárborgir.

„Þetta svæði hefur verið á aðalskipulagi síðan a.m.k. 2006 og þá skilgreint sem blönduð landnotkun sem þjóni bæði útivist og uppbyggingu Há­skólans á Akureyri. Eftir viðræður við háskólann hefur komið í ljós sá möguleiki að koma þarna að íbúðum, mögulega í tengslum við þá starfsemi sem þarna er fyrir, t.d. fyrir nemendur eða kennara. Möguleiki á íbúðauppbyggingu þarna var m.a. kynntur á opnum fundi um skipulagsmál á Akureyri haustið 2014 og án athugasemda,“ segir Tryggvi.

Hann bendir á að aðalskipulagið sé á vinnslustigi og sé samþykkt stefna bæjaryfirvalda. Allar athugasemdir við það séu því vel þegnar. „Slíkt samtal við íbúa er nauðsynlegt til þess að velta við öllum möguleikum, sjá áður ókönnuð tækifæri og skerpa hug þeirra sem skipulagið vinna."

Tryggvi ítrekar að eitt af markmið­ um skipulagsráðs sé að þétta byggð. Það endurspeglist í drögum að umhverfisskýrslu Aðalskipulags, en nánar er rætt við Tryggva og fjallað um málið í prentútgáfu Vikudags.

Aðalskipulagið er á vinnslustigi og gefst íbúum kostur á að koma með ábendingar og athugasemdir áður en það fer í formlegt ferli. Frestur til þess rennur út fimmtudaginn 20. apríl.

Nýjast