Að venju fylgjast margir Húsvíkingar með brottfarardegi fannarinnar í Dagmálaláginni í Húsavíkurfjalli. Þetta hafa menn reyndar gert áratugum saman, jafnvel í aldir. Og í gamla daga segir sagan að sjómenn á Húsavík hafi ekki talið skynsamlegt að hefja róðra fyrr en fönnin væri farin. Margt bendir þó til að þessi þjóðsaga standist ekki rök.
Brotfarardagurinn hefur verið skrásettur samviskusamlega allt frá árinu 1976, fyrst á skrifstofum Kaupfélags Þingeyinga og síðan á sama stað, á 3. hæð Kaupfélagshússins af starfsfólki fyrirtækja sem þar eru til húsa og hafði Egill Olgeirsson umsjón með framkvæmd könnunar á fönninni lengst af, en nú hefur Ari Páll Pálsson tekið við hinu mikilvæga embætti fannarkönnuðar og fylgist grannt með. Og hannn sendi frá sér eftirfarandi yfirlýsingu 29. maí s.l.:
„Þá er snjórinn í Dagmálalág allur, 29. maí, 2017, og hefur ekki horfið þetta snemma þau 42 ár sem gögn af 3. hæðinni á Garðarsbraut 5 ná yfir (1976-2017). Fyrra metið var 30. maí 2003, en fyrir aðeins 3 árum var met slegið í hina áttina, þegar snjórinn fór ekki fyrr en 11. september árið 2014.“
Þarna var sem sé slegið met og það að sjálfsögðu heimsmet - því hvergi í heiminum hefur fönnin farið fyrr úr Dagmálaláginni en nú frá því mælingar hófust. JS