Á fundi framkvæmdanefndar Norðurþings í gær var tekið fyrir erindi frá starfsfólki Borgarhólsskóla. Í erindinu koma fram þungar áhyggjur af af umferðaröryggi nemenda á leið til sundkennlu í sundlaug Húsavíkur.
Óskað er eftir því að til móts við sundlaugina verði sett upp gönguljós, en að öðrum kosti að gangbrautarvörður tryggi öryggi nemenda á leið þeirra í sundkennslu.
Framkvæmdanefnd samþykkti á fundinum að gangbraut milli sundlaugar og íþróttasvæðis á þjóðvegi 85 verði færð til suðurs að gatnamótum Auðbrekku og Héðinsbrautar. Þá er lagt til að þar verði sett upp gangbrautarljós hið fyrsta og Vegagerðin krafin um aðkomu að verkinu.
Gunnar Hrafni Gunnarssyni framkvæmda- og þjónustufulltrúa var falið að fylgja málinu eftir.