Hættuástand á Akureyrarflugvelli

Hættustigi hefur verið lýst yfir á Akureyrarflugvelli. Reykur kom upp í vél Air Iceland Connect sem var á leið til Egilsstaða og var ákveðið að lenda frekar á Akureyri. Mikilll viðbúnaður er á flugvellinum , lögregla, slökkvilið og sjúkrabílar. 44 eru um borð í vélinni. Það var RÚV sem sagði frá þessu.  Þar kemur fram að verið sé að ferja farþega úr vélinni og reykkafarar eru komnir um borð í hana.

Fréttin hefur verið uppfærð:

Samkvæmt frétt á Vísi barst tilkynning um reyk í flugvél sem lenda átti á Egilsstöðum. Ákveðið var að lenda á Akureyrarflugvelli  og lenti vélin klukkan 8:20. Hættustigi var lýst yfir en því aflýst innan við hálftíma síðar. Samkvæmt lögreglu er verið að skoða hvaðan reykurinn kom, en engin hætta er talin á ferðum.

Nýjast