„Hætta að þagga þetta niður"

Hér má sjá af kannabisefni sem lögreglan á Akureyri hefur lagt hald á. Kannabisefni eins og marijúan…
Hér má sjá af kannabisefni sem lögreglan á Akureyri hefur lagt hald á. Kannabisefni eins og marijúana, sem ræktað er hér á landi, er algengasta efnið til neyslu.

Fíkniefnamál á Akureyri hafa verið talsvert til umfjöllunar undanfarnar vikur og mánuði og fréttir borist af hnífaárásum þeim tengdum. Þá hefur færst í aukana að aðilar í fíkniefnaheiminum beri vopn á sér eins og fjallað var um í blaðinu fyrir skemmstu.

Vikudagur ákvað að kanna ástandið á Akureyri varðandi fíkniefnanotkun og ræddi við lögreglu, fulltrúa foreldrasamtaka og forvarnarfulltrúa bæjarins.

Heimir Jóhannsson hjá Samtaka, samtök foreldrafélaga á Akureyri, segir í skriflegu svari við fyrirspurnum blaðsins hafa áhyggjur af stöðunni.

„Fíkniefnaheimurinn á Akureyri er mun stærri en fólk gerir sér grein fyrir. Fíkniefni eru að finnast á unglingum í 7. bekk sem er agalegt. Það er aukning á notkun hjá öllum aldurshópum. Nokkur harka er í þessum heimi og því miður er fólk hér hrætt við að láta í sér heyra um þessi mál,“ segir Heimir og bætir við: „Við höfum heyrt um hótanir, fjárkúgun, ofbeldi, skemmdir á bílum, húsum og fleira.“

Heimir segir að nákvæmar tölur um neyslu og tegundir efna í umferð liggi ekki fyrir sér að vitandi og kvartar yfir því að lögreglan gefi ekki meira upp um þessi mál. Hann bendir líka á að Rósenborg, sem er fé­lags­, tómstunda­ og íþróttamiðstöð á vegum Akureyrarbæjar og hefur m.a. forvarnamál á sinni könnu, forðist opna umræðu um þessa hluti.

„Því miður eru bæði lögregla og Rósenborg mjög lokuð með þessi mál. Það má ekki mikið tala um þau og vilja þau ekki ala á hræðsluáróðri. Við í Samtaka reyndum ítrekað að fá þau til að opinbera þessar tölur eða tala um málin sem hafa komið upp hér í bæ,“ segir Heimir.

Gunnar Jóhannsson, lögreglufulltrúi á Akureyri, segir við fyrirspurn blaðsins að fíkniefnanotkun hafi hægt og sígandi aukist undanfarin ár. Spurður um helstu efnin segir hann að þetta séu fyrst og fremst kannabisefni eins marijúana, sem ræktað er hér á landi, sem er til neyslu.

Þetta er aðeins  brot úr ítarlegri umfjöllun sem nálgast má í heild sinni í prentútgáfu Vikudags.

 

Nýjast