Kosið var í sex efstu sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í röðun fulltrúaráðs í Brekkuskóla sl. helgi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Gunnar Gíslason, Eva Hrund Einarsdóttir, Þórhallur Jónsson, Lára Halldóra Eiríksdóttir, Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Þórhallur Harðarson hlutu kosningu.
Kjörnefnd leggur fram tillögu að framboðslista í heild á fundi í fulltrúaráðinu 15. febrúar nk. Atkvæðin fóru þannig að í fyrsta sæti hlaut Gunnar Gíslason 86 atkvæði, Axel Darri Þórhallsson fékk 17 atkvæði en aðrir frambjóðendur átta atkvæði. Eva Hrund Einarsdóttir bauð sig ein fram í annað sætið og var sjálfkjörinn. Þórhallur Jónsson hlaut 47 atkvæði í þriðja sæti, Baldvin Valdemarsson 34 atkvæði og aðrir samtals 32 atkvæði.