Ritlistasmiðjan Ungskáld 2018 fer fram í Verkmenntaskólanum á Akureyri laugardaginn 27. október frá kl. 9-16. Markmiðið er að efla ritlist og skapandi hugsun hjá ungu fólki á aldrinum 16-25 ára þeim að kostnaðarlausu.
Verkefnið Ungskáld hefur verið við lýði á Akureyri í nokkur ár og er það eina sinnar tegundar á landinu. Fyrri hluta dags leiðir rithöfundurinn Guðrún Eva Mínervudóttir vinnuna en eftir hádegið verður unnið undir leiðsögn Snæbjörns Ragnarssonar sem er betur þekktur sem Bibbi í Skálmöld. Þátttakendum verður boðið upp á létt hádegissnarl frá kl. 12-13.
Samhliða er efnt til ritlistakeppni sem er opin öllum ungmennum á aldrinum 16-25 ára. Þar verða veitt peningaverðlaun fyrir efstu þrjú sætin. Engar hömlur eru settar á texta, hvorki varðandi efnistök né lengd. Þeir þurfa þó að vera á íslensku. Ritlistakeppnin verður nánar auglýst síðar. Ritlistasmiðjan laugardaginn 27. október er sem áður segir ókeypis fyrir þátttakendur og þeim ber að sjálfsögðu engin skylda til að skila inn textum í ritlistakeppnina.
Skráning í Ritlistasmiðjuna fer fram á www.ungskald.is. Ýmsar skemmtilegar upplýsingar og myndbönd er að finna á Facebooksíðu Ungskálda.
Í nefnd Ungskálda eru fulltrúar frá Akureyrarstofu, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Menntaskólanum á Akureyri, Ungmennahúsinu í Rósenborg og Amtbókasafninu.