Bæjarfulltrúar L listans, Framsóknarflokksins og Samfylkingarinnar á Akureyri skrifuðu undir málefnasamning í Menningarhúsinu Hofi nú fyrir stundu. Guðmundur Baldvin Guðmundsson oddviti Framsóknarflokksins verður áfram formaður bæjarráðs. Halla Björk Reynisdóttir oddviti L-listans verður forseti bæjarstjórnar og Hilda Jana Gísladóttir oddviti Samfylkingarinnar verður formaður stjórnar Akureyrarstofu.
Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra en Eiríkur Björn Björgvinsson lætur af störfum eftir átta ára setu.
Í málefnasamningnum kemur m.a. fram að áhersla er lögð á félagslegt réttlæti og að allir njóti mannréttinda.
"Við viljum halda áfram að virkja íbúa til lýðræðislegrar þátttöku og auka vægi íbúasamráðs. Lögð verður áhersla á að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla og bæta starfsskilyrði í leik- og grunnskólum bæjarins. Sérstök áhersla verður lögð á leiðir sem geta bætt líðan barna og ungmenna ekki síst með snemmtækri íhlutun og aðgengi að sérfræðiþjónustu innan veggja leik- og grunnskóla. Unnið verður að því að bæta þjónustu við aldraða og gera hana sveigjanlegri," segir í tilkynningu.
Þá verður farið í tilraunaverkefni annars vegar um styttingu vinnuvikunnar og hins vegar um samfelldan vinnudag yngri grunnskólabarna í samstarfi við frístund með tengingu við íþrótta- og tómstundastarf.
Lögð verður áhersla á að koma á beinni tengingu við útlönd.
Formennska í ráðum verður sem hér segir:
· Forseti bæjarstjórnar – L-listinn
· Formaður bæjaráðs – Framsóknarflokkurinn
· Stjórn Akureyrarstofu – Samfylkingin
· Frístundaráð – L-listinn
· Fræðsluráð – Framsóknarflokkurinn
· Skipulagsráð – Framsóknarflokkurinn
· Umhverfis- og mannvirkjaráð – L-listinn
· Velferðarráð – Samfylkingin