Guðmundur Baldvin Guðmundsson, oddviti Framsóknarflokksins, nýtur mests trausts meðal oddvita þeirra flokka sem bjóða fram á Akureyri í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Þetta sýna niðurstöður skoðanakönnunar sem Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA) framkvæmdi fyrir Vikudag.
Guðmundur Baldvin nýtur trausts 35% þeirra sem tóku þátt en 18% bera frekar eða mjög lítið traust til hans. 47% segja hvorki né. Hilda Jana Gísladóttir oddviti Samfylkingarinnar, Gunnar Gíslason oddviti Sjálfstæðisflokksins og Halla Björk Reynisdóttir oddviti L-listans njóta 31% trausts meðal kjósenda. Fæstir bera lítið traust til Höllu Bjarkar af þeim þremur, eða 17%. 24% bera lítið traust til Gunnars Gíslasonar og 25% til Hildu Jönu. 25% bera mjög eða frekar mikið traust til Sóleyjar Bjarkar Stefánsdóttur oddvita Vg en 27% lítið traust.
Taka skal fram að framboðslistar Miðflokksins og Pírata voru ekki komnir fram þegar könnunin var gerð og því eru oddvitar þeirra flokka ekki inn í þessari könnun.
Könnunin var framkvæmd á tímabilinu 23. apríl til 4. maí. Haft var samband við rúmlega þúsund manns í gegnum tölvupóst og fengust 663 svör.