Framboðslisti Framsóknarflokksins á Akureyri fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 26. maí næstkomandi var samþykktur einróma á fulltrúaráðsfundi félagsins nú í morgun, laugardaginn 3. mars.
Fulltrúaráðið stillti upp listanum þar sem Guðmundur Baldvin Guðmundsson, bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs, skipar efsta sæti, Ingibjörg Isaksen, bæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri er í öðru sæti, Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir búfjárerfðafræðingur í því þriðja, Tryggvi Már Ingvarsson landmælingaverkfræðingur skipar fjórða sæti listans, Sunna Hlín Jóhannesdóttir framhaldsskólakennari er í fimmta sæti og Jóhannes Gunnar Bjarnason, íþróttafræðingur og fyrrverandi bæjarfulltrúi, skipar sjötta sæti listans.
Við uppstillingu listans var meðal annars áhersla lögð á fjölbreytta menntun og reynslu frambjóðenda, ungt og hæfileikaríkt fólk í bland við reynslumikla frambjóðendur og jafnt hlutfall kynjanna. „Ég fer bjartsýnn inn í kosningabaráttuna og vongóður um góða niðurstöðu enda framboðslistinn einhuga og vel skipaður hópur,“ segirGuðmundur Baldvin Guðmundsson, oddviti listans.
„Ég hlakka til að vinna með þessum öfluga hópi frambjóðenda Framsóknarflokksins sem gengur samstíga inn í komandi kosningabaráttu,“ segir Ingibjörg Isaksen bæjarfulltrúi.
Á framboðslista Framsóknarflokksins fyrir bæjarstjórnakosningarnar eru 22 frambjóðendur, 11 konur og 11 karlar.
Framsóknarmenn fengu tvo bæjarfulltrúa í sveitarstjórnarkosningunum 2014, Guðmund Baldvin Guðmundsson og Ingibjörgu Isaksen.
Hér að neðan má sjá listann í heild:
1. Guðmundur Baldvin Guðmundsson Bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs
2. Ingibjörg Ólöf Isaksen Framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi
3. Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir Búfjárerfðafræðingur
4. Tryggvi Már Ingvarsson Landmælingaverkfræðingur
5. Sunna Hlín Jóhannesdóttir Framhaldsskólakennari
6. Jóhannes Gunnar Bjarnason Íþróttakennari og fv. bæjarfulltrúi
7. Halldóra Kristín Hauksdóttir Lögmaður
8. Sverre Andreas Jakobsson Viðskiptafræðingur og handboltaþjálfari
9. Óskar Ingi Sigurðsson Rafmagnsiðnfræðingur og kennari
10. Anna Rakel Pétursdóttir Nemi og knattspyrnukona
11. Grétar Ásgeirsson Flokksstjóri og vélamaður
12. Katrín Ásgrímsdóttir Garðyrkjufræðingur
13. Gunnar Þórólfsson Verkamaður
14. Ólöf Rún Pétursdóttir Nemi
15. Siguróli M Sigurðsson Sagnfræðingur
16. Ragnhildur Hjaltadóttir Umboðsmaður
17. Árni Gísli Magnússon Sölumaður
18. Petrea Ósk Sigurðardóttir Leikskólakennari
19. Guðrún Rúnardóttir Bókari
20. Ólafur Ásgeirsson Fyrrverandi aðstoðaryfirlögregluþjónn
21. María Ingadóttir Bókari
22. Páll H Jónsson Eldri borgari