Akureyrarstofa og Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar stóðu í gær fyrir fundi sem hafði það að markmiði að hvetja stofnanir og fyrirtæki til að skoða þau tækifæri sem felast í að styrkja starfstöðvar sínar á landsbyggðunum, m.a. með því að setja upp dreifða starfsemi með sérhæfingu og þekkingu á völdum stöðum eða með því að skilgreina störf án staðsetningar. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.
Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður bæjarráðs opnaði fundinn og ræddi augljósa kosti þess fyrir landsbyggðirnar og íbúa að fyrirtæki og stofnanir byggi upp starfsstöðvar víðar en bara þar sem markaður er stærstur og nefndi einnig að skýrari stefnu stjórnvalda um opinberar stofnanir skorti.
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri og Margrét Hauksdóttir forstjóri Þjóðskrár sögðu frá sínum stofnunum og tóku dæmi hvernig má byggja upp öfluga og góða þjónustu þótt starfsstöðvar séu á fleiri en einum stað á landinu. Þegar embætti skattstjóra á landinu voru sameinuð undir einum hatti ríkisskattsjóra varð í raun til ný stofnun og miklar breytingar urðu m.a. með þeirri afleiðingu að störfum á starfsstöð á Akureyri fjölgaði. Starfsfólki Þjóðskrár á Akureyri hefur líka fjölgað jafnt og þétt á síðustu árum. Í máli beggja mátti heyra að það hvað Akureyri er öflugur þjónustukjarni, skipti miklu máli þegar lagt var af stað og ræður miklu um það hversu vel hefur gengið. Skúli nefndi sérstaklega að Akureyri hafi marga þætti sem borg hefur og það hafi skipt sköpum. Fram kom hjá báðum að rafræn stjórnsýsla er forsenda þess að þjónusta og skipulag gangi snuðrulaust fyrir sig. Þá nefndu þau bæði að tilvist Háskólans á Akureyri er og var grundvallaratriði í að árangur hefur náðst. Skipulag beggja stofnanana felur í sér að sérhæfð svið þeirra eru staðsett á Akureyri þannig að til verður sérþekking og teymi margra starfsmanna sem vinna að sömu verkefnum. Skúli nefndi sérstaklega að mikil tíðni flugferða milli Akureyrar og Reykjavíkur hafi verið stór þáttur í að byggja upp á Akureyri á sínum tíma og að fækkun ferða á þessari leið hafi bitnað t.a.m. á fundarhaldi á Akureyri.
Svavar Pálsson sýslumaður á Norðurlandi eystra var síðastur frummælenda. Hann brýndi fólk til dáða og sagði frá öflugri stefnu Dana í flutningi valdra stofnana frá Kaupmannahöfn. Danir hafa sett sér það markmið að 11,5% opinberra starfa verið flutt frá höfuðborgarsvæðinu.
Margvíslegan lærdóm má draga af fundinum en ein niðurstaða hans var að margar vel heppnaðar fyrirmyndir séu til staðar og þekking á því hvernig standa megi að opnun og eflingu starfsstöðva út um land en stefnu stjórnvalda skorti sárlega. Fram kom að nauðsynlegt sé að stjórnvöld taki grundvallarákvörðun um að byggja upp tvo borgarkjarna á Íslandi og að það sé góð leið til að tryggja jafnari dreifingu þjónustu og opinberra starfa á landinu og þar með byggðar.