Í nýju aðalskipulagi Akureyrarbæjar er stefnt að því að bæta umferðaröryggi við Glerárgötu. Á 550 m kafla frá Kaupvangsstræti norður að gatnamótum Grænugötu og Smáragötu er áætlað að Glerárgötu verði breytt úr fjórum akreinum í tvær en um leið tryggt að hægt verði að breikka hana á ný í fjórar akreinar ef þörf krefur. Umferðarhraði verði einnig lækkaður á kaflanum frá Grænugötu/Smáragötu að Kaupvangsstræti.