Nýting á gistirýmum á Akureyri jókst um 13% á milli áranna 2015 og 2016. Þetta kemur fram í ársskýrslu Akureyrarbæjar. Þar segir einnig að markaðssetning Akureyrar yfir vetrartímann hafi aukist, m.a. fyrir tilstilli öflugra ferðaþjónustuaðila. Ferðamönnum sem koma til Íslands fjölgar stöðugt og hefur þeim einnig fjölgað á Norðurlandi, þó umtalsvert minna en á suðvesturhorninu.
Á tímabilinu desember til maí fjölgaði gistinóttum á hótelum á Norðurlandi að jafnaði um 47% frá fyrra ári, standa erlendir gestir fyrir um 66% af þeirri aukningu á móti 34% Íslendinga.
Í skýrslunni segir ennfremur að ferðaþjónustan haldi áfram að vaxa og dafna á Akureyri. Nokkrir nýir veitingastaðir og barir opnuðu á árinu 2016 og afþreyingarúrval bæjarins hélt áfram að aukast, m.a. var boðið upp á skipulagða kvöldsiglingu til Grímseyjar frá Akureyri og nýtt útsýnisflug.