Í gær fór fram athöfn í tilefni þess að fyrstu nemendurnir eru að ljúka tveggja ára diplómunámi í tölvunarfræði við HA/HR, þeir Óskar Þór Davíðsson og Einar Magnús Einarsson. Námið er samstarfsverkefni Háskólans á akureyri (HA) og Háskólans í Reykjavík (HR) og hófst haustið 2015.
Frá því námið hófst hefur námsframboðið þróast enn frekar og nú er í boði að taka þriðja árið til BSc gráðu í tölvunarfræði við HA/HR.
Náminu er þannig háttað að allir fyrirlestrar eru haldnir í HR, teknir upp og þeim hlaðið á kennsluvef eða streymt í kennslustofu í HA. Verklegir tímar og dæmatímar eru hins vegar haldnir í Háskólanum á Akureyri og nemendur njóta þar aðstoðar kennara á staðnum.
Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, segir að það hafi verið að tilstuðlan samtaka atvinnulífsins á Norðurlandi að samstarfið um nám í tölvunarfræðum fór af stað. „Þó svo að nemendur brautskráist með skírteini frá HR þá líta þeir á sig sem nemendur í HA og svæðið nýtur þeirrar þjónustu sem þeir geta síðan boðið upp á. Með nýjunginni að bjóða einnig upp á þriðja árið hér á Akureyri höldum við áfram að koma til móts við nemendur á landsbyggðinni og það ríkir mikil ánægja meðal atvinnulífsins með þetta fyrirkomulag,“ segir Eyjólfur.
Hátt í 50 nemendur munu stunda nám í tölvunarfræði við HA/HR á næsta misseri.