Fyrrverandi formaður Hjólreiðafélags Akureyrar kærður vegna meintrar fjármálaóreiðu

Hjólreiðafélag Akureyrar (HFA) hefur lagt fram kæru til lögreglu á hendur fyrrverandi formanns félagsins vegna meints fjármálamisferlis. Samkvæmt heimildum Vikudags vöknuðu grunsemdir í desember á síðasta ári um óeðlilega meðferð formannsins fyrrverandi á fjármunum félagsins. Maðurinn sagði stöðu sinni sem formaður lausri í janúar sl. vegna málsins.

Ekki hefur fengist staðfest um hversu háar fjárhæðir er að ræða eða nákvæmlega með hvaða hætti meint brot felast. Rannsóknarlögreglan á Akureyri staðfesti í samtali við Vikudag að HFA hefur lagt fram kæru en að rannsókn málsins sé ekki hafin. Lögreglan gat ekki gefið frekari upplýsingar um málið.

Vikudagur leitaði viðbragða frá stjórnarmeðlimum HFA en engin vildi tjá sig að stöddu en bentu á að fjallað verði um málið á Aðalfundi félagsins sem fram fer á morgun, laugardag klukkan 13.

Formaðurinn fyrrverandi viðurkenndi í samtali við Vikudag að hann hafi ekki staðið nógu faglega að málum er varða fjármál félagsins en vonaðist til að greiða mætti úr þeim ágreiningi sem myndast hefur á milli hans og stjórnar HFA .

„Á þeim tíma sem ég hef starfað við uppbyggingu Hjólreiðafélags Akureyrar hafa ýmis verkefni fallið mér á herðar eins og gerist í félögum í hraðri uppbyggingu, þar á meðal umsjón með fjármálum félagsins. Ég viðurkenni fúslega að ég tókst ekki á við það verkefni með nægilega skýrum og faglegum hætti og það þykir mér ákaflega leitt. Það er eindreginn vilji minn að bæta úr því eins vel og hratt og hægt er. 

Þó ég harmi að málið sé komið á þennan stað, og voni að það verði ekki til þess að bera skugga á starfsemi félagsins, tel ég það jákvætt að lögregla fari yfir gögn og ágreining aðila,“ sagði formaðurinn fyrrverandi í skriflegri yfirlýsingu til Vikudags.

 

Nýjast