Fullveldið endurskoðað í Listasafninu

Laugardaginn kemur þann 28. apríl kl. 15:00 verður opnuð samsýningin Fullveldið endurskoðað í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi. Um er að ræða útisýningu sem sett er upp á völdum stöðum í miðbæ Akureyrar. Alls eiga 10 ólíkir myndlistarmenn verk á sýningunni sem gerð eru sérstaklega í tilefni af aldarafmæli fullveldis Íslands.

Markmiðið er að sýna nýja hlið á stöðu fullveldisins á okkar tímum og fá áhorfendur til að velta fyrir sér hugmyndum, útfærslum og fjölbreyttum sjónarhornum því tengdu. Listamennirnir eru Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Gunnar Kr. Jónasson, Hrefna Harðardóttir, Jón Laxdal Halldórsson, Jónína Björg Helgadóttir, Karólína Baldvinsdóttir, Libia Castro og Ólafur Ólafsson, Rebekka Kühnis, Samúel Jóhannsson og Snorri Ásmundsson.

Á sýningartímanum verður boðið upp á leiðsögn með listamönnunum þar sem gengið verður á milli verkanna og þau rædd. Sýningin hlaut styrk úr sjóði afmælisárs fullveldis Íslands. Sýningarstjórar eru Guðrún Pálína Guðmundsdóttir og Hlynur Hallsson.

Nýjast