Fullorðnir á barnadeild sökum plássleysis

Sjúkrahúsið á Akureyri.
Sjúkrahúsið á Akureyri.

Það er víðar en á Landspítalanum sem grípa þarf til óvenjulegra aðferða við að koma sjúklingum fyrir vegna plássleysis.

Lyflækn­inga­deild­in á Sjúkra­hús­inu á Ak­ur­eyri (SAk) er yf­ir­full með reglu­legu milli­bili og eru sjúk­ling­ar þá lagðir inn á skurðdeild eða jafn­vel barna­deild spít­al­ans. Al­gjört neyðarúr­ræði sé að sinna sjúk­ling­um á göng­um spít­al­ans. Þetta segir Sig­urður E. Sig­urðsson­, fram­kvæmda­stjóra lækn­inga á SAk í samtali við mbl.is.

Hann segir starfsfólk hafa þurft á stundum að sýna hugmyndaflug til að koma öllum fyrir „Það hafa komið tíma­bil í haust þar sem það hef­ur verið þungt og mikið álag á spít­al­an­um, sér­stak­lega á lyflækn­inga- og skurðlækn­inga­deild­inni,“ seg­ir Sig­urður

Hann segir jafnframt að komið hafi fyrir að lyflækningasjúklingar hafi lagst inn á skurðlækninga- eða barnadeild, „enda reyn­um við frek­ar að gera það en að setja sjúk­linga á gang­ana. Það er al­gjört neyðarúr­ræði, enda held ég að það séu all­ir sam­mála um að ekki eigi að sinna veik­um sjúk­ling­um á göng­um nema brýna nauðsyn beri til,“ segir Sigurður í samtali við mbl.is

 

Nýjast