Frístundaráð býður til stefnumótunarfundar

Mynd úr safni/Ármann Hinrik
Mynd úr safni/Ármann Hinrik

Frístundaráð Akureyrarbæjar í samstarfi við Íþróttabandalag Akureyrar býður íbúum Akureyrar til stefnumótunarfundar þriðjudaginn 6. júní frá kl. 17.00-19.00 í Hömrum í Hofi.

Markmið fundarins er að laða fram skoðanir íbúa á þeim þáttum sem skipta mestu máli í íþróttamálum á Akureyri á komandi árum og er fundurinn liður í að móta framtíðarstefnu í málaflokknum.

„Innlegg bæjarbúa skiptir verulegu máli og því er mikilvægt að fá góða þátttöku frá íbúum bæjarins en stefnan mun endurspegla framtíðarsýn og helstu áherslur í starfsemi íþróttamála og mannvirkja bæjarins. Íþróttastefna Akureyrar verði þannig leiðarljós sveitafélagsins í íþóttamálum á komandi árum,“ segir á vef Akureyrarbæjar.

 

Nýjast