Frá hruni hafa verið byggðar 530 íbúðir á Akureyri en 1998 í Reykjavík (ath eingöngu Reykjavík, ekki höfuðborgarsvæðið allt). Af þessum 530 íbúðum eru 76 sem eru minni en 75 fm. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá skipulagsráði Akureyrarbæjar.
Um þessar mundir eru margar íbúðir í byggingu á Akureyri og ásókn í íbúðarhúsalóðir hefur tekið stökk á síðustu mánuðum.
„Akureyrarbær er í góðri stöðu að mæta aukinni eftirspurn eftir íbúðarhúsalóðum. Árið 2015 var opnað fyrir umsóknir um lóðir í nýju hverfi, 3. áfanga Naustahverfis, svokölluðu Hagahverfi og eru framkvæmdir þar hafnar. Bæjaryfirvöld áforma samt sem áður að nýjar íbúðir rísi sem mest á þéttingarsvæðum í bænum sem unnið er að að deiliskipuleggja. Slíkt tekur tíma en opnun Hagahverfis tryggir að hægt er að mæta aukinni eftirspurn,“ segir í tilkynningunni.
Þá kemur fram að húsnæðisverð í sérbýli síðustu 6 mánaða er 22% lægra á Akureyri en í Reykjavík. Í fjölbýli er verðið 30% lægra. (ath miðað við húsnæði byggt 1951 og síðar)
„Atvinnuástand á svæðinu er gott og er eftirspurn eftir atvinnulóðum einnig að aukast. Á Akureyrarsvæðinu í heild eru spennandi hlutir framundan svo sem opnun Vaðlaheiðarganga og uppbygging iðnaðar við Húsavík,“ segir jafnframt í tilkynningunni.