Bæjarstjórn Akureyrar hefur samþykkt bókun þar sem það er gagnrýnt harðlega að nýsamþykkt samgönguáætlun sé vanfjármögnuð í fjárlögum 2017. „Áframhaldandi fjársvelti til samgöngumála getur leitt til hruns í samgöngukerfinu sem mun koma hart niður á umferðaröryggi, ferðaþjónustu, öðrum atvinnugreinum og íbúum landsins,“ segir í bókuninni.
Bæjarstjórn Akureyrar telur að áframhaldandi fjársvelti til samgöngumála geti leitt til hruns í samgöngukerfinu sem muni koma hart niður á umferðaröryggi, ferðaþjónustu og öðrum atvinnugreinum. Þá er bent á að framkvæmdir sem fyrirhugað er að falla frá séu mikilvæg hagsmunamál fyrir byggðarlög á landsbyggðinni og séu liður í því að styrkja innviði landsbyggðarinnar.
Meðal þeirra verkefna sem sem samgönguráðherra leggur til að skorin verði niður er þriðji áfangi Dettifossvegar og nýtt flughlað við Akureyrarflugvöll.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar telur það algjörlega óásættanlegt að nýsamþykkt samgönguáætlun hafi ekki verið fjármögnuð að fullu við gerð fjárlaga 2017. Áætlunin er vanfjármögnuð um 10 milljarða króna á árinu 2017 og því hefur samgönguráðherra lagt til mikinn niðurskurð á þeim verkefnum sem til stóð að framkvæma á árinu.
Þriðji áfangi Dettifossvegar, er meðal þeirra verkefna sem samgönguráðherra leggur til að skorið verði niður og ljóst er að vegurinn mun því ekki klárast á árinu 2018 líkt og stefnt var að. Fjármagn í flughlaðið á Akureyri mætir niðurskurði og er ekki á áætlun.
Þessar framkvæmdir og fleiri sem fyrirhugað er að falla frá eru mikilvæg hagsmunamál fyrir byggðarlög í landinu og eru liður í því að styrkja innviði landsbyggðarinnar og stuðla að möguleikanum fyrir fjölbreytta uppbyggingu um allt land.
Áframhaldandi fjársvelti til samgöngumála getur leitt til hruns í samgöngukerfinu sem mun koma hart niður á umferðaröryggi, ferðaþjónustu, öðrum atvinnugreinum og íbúum landsins.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar skorar á Alþingi, ráðherra og ríkisstjórn að endurskoða þessa ákvörðun og tryggja þegar það fjármagn sem gert er ráð fyrir í samgönguáætlun, þannig að uppbygging þessara samgöngumannvirkja sem og annarra um land allt komi til framkvæmda á árinu samkvæmt áætlun.