Finnur ehf. átti lægsta tilboð í hjóla- og göngustíg

Mynd/esveit.is
Mynd/esveit.is

Í dag voru opnuð tilboð í fyrri áfanga nýs hjóla- og göngustígs frá Hrafnagilshverfi að Akureyri. Í tilkynningu á vef Eyjafjarðarsveitar kemur fram að framkvæmdinni sé ætlað að auka öryggi og draga stórlega úr slysahættu vegfarenda. „Umferð gangandi, hlaupandi og hjólandi vegfarenda frá Akureyri og fram í Hrafnagil er gríðarmikil með auknum áhuga fólks á götuhlaupum og -hjólreiðum. Nauðsynlegt er að aðskilja þessa umferð frá akandi umferð með nýjum stíg,“ segir í tilkynningunni. Eyjafjarðarsveit er verkkaupi og nýtur stuðnings Vegagerðarinnar.

Alls bárust fimm tilboð í verkið en lægsta tilboð átti Finnur ehf. kr. 81,5 mkr. eða um 83% af kostnaðaráætlun sem er 98,2 mkr.

Gert er ráð fyrir að síðari áfangi  framkvæmdanna verði boðinn út í febrúar eða mars árið 2018 og stígurinn verði tilbúinn í sumarbyrjun 2018.

Nýjast