Féll af svölum á 3. hæð á Akureyri

Alvarlegt slys varð á Akureyri á aðfaranótt sunnudags þegar maður á þrítugsaldri féll niður af svölum á þriðju hæð fjölbýlishúss. Maðurinn slasaðist töluvert, og var fluttur á slysadeild.

Tildrög slyssins voru þannig að aðurinn ætlaði að aðstoða vinkonu sína sem bjó í íbúð á þriðju hæð í fjölbýlishúsinu en hafði læst sig úti. Hann fór út á svalir á fjórðu hæð hússins og ætlaði að klifra þaðan niður á svalir á þriðju hæð. Ekki vildi betur til en að hann missti takið og féll niður á lóðina. 

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri var maðurinn fluttur á sjúkrahús með lærbeinsbrot og mögulega fleiri beinbrot. 

RÚV greindi fyrst frá þessu

Nýjast