Mikil atvinnuuppbygging hefur átt sér stað á starfssvæði Framsýnar- stéttarfélags að undanförnu. Munar þar mest um mikinn vöxt í ferðaþjónustu sem og iðnaðaruppbyggingu á Bakka við Húsavík. Fyrir vikið hefur félagsmönnum stéttarfélagsins fjölgað umtalsvert á milli ára.
Á heimasíðu Framsýnar kemur fram að alls hafi 2.920 félagsmenn greitt til Framsýnar- stéttarfélags á árinu 2016 samanborið við 2.455 árið 2015.
Athygli vekur að körlum fjölgar talsvert meira en konum. Af þeim sem greiddu til félagsins voru 1.607 karlar eða 55 prósent og 1.313 konur eða 45 prósent. „Fram að þessu hefur skiptingin milli kynjanna verið mjög jöfn s.br. árið 2015. Þá var skiptingin, konur 49,6% og karlar 50,4%. Skýringin liggur fyrir, breytingarnar eru tilkomnar vegna verklegra framkvæmda á svæðinu og því hefur karlastörfum fjölgað umtalsvert umfram hefðbundin kvennastörf,“ segir á heimasíðu stéttarfélagsins.
Þá er greint frá því að gjaldfrjálsir félagsmenn hafi um síðustu áramót verið alls 292, það eru aldraðir og öryrkjar sem ekki eru á vinnumarkaði. Á hverjum tíma falla um 10% félagsmanna undir þessa skilgreiningu. Félagsmenn þann 31. desember 2016 voru samtals 3.212, það er greiðandi félagar og gjaldfrjálsir.
Þá má geta þess að 469 launagreiðendur greiddu til Framsýnar á síðasta ári og fjölgaði þeim um 38 á milli ára.
Ekki kemur á óvart að flestir greiðandi félagar eru búsettir á Húsavík en á grafinu hér fyrir ofan má sjá skiptingu greiðandi félagsfólks Framsýnar á árinu 2016 eftir póstnúmerum. Tæpur helmingur eða 44 prósent kemur úr póstnúmerinu 640. Sveitirnar í Þingeyjarsýslum og minni þéttbýlisstaðir eiga samtals 34 prósent greiðandi félaga. Alls 22 prósent greiðandi félagar eru úr öðrum póstnúmerum, þar af 4% sem búa erlendis. „Líkast til er að mestu leyti þar um að ræða tímabundið starfsfólk við meðal annars ferðaþjónustu og sauðfjárslátrun,“ segir á heimasíðu Framsýnar.
Í ársskýrslu Framsýnar fyrir árið 2016 sem kom út á dögunum má sjá skemmtilega tölfræði sem athyglisvert er að velta fyrir sér. Til dæmis má sjá hér fyrir ofan kökurit yfir þjóðerni greiðandi félaga í Framsýn.
Íslendingar voru 72 prósent af þeim eða 2.102. Það er því rúmlega fjórðungur greiðandi félagsmanna erlendur. Þar af eru Pólverjar áberandi flestir. 14 prósent greiðandi félaga eru pólskir eða 409 einstaklingar.
Félagsmenn eru af mörgum öðrum þjóðernum en þó engin þjóð nærri jafn fjölmenn og pólverjar. Tékkneskir félagar eru 3% eða 88 sem er þriðja fjölmennasta þóðin en Tékkar hafa verið fjölmennir í ferðaþjónustu á svæðinu undanfarin ár.