Félagsmiðstöðin Tún flytur sig um set

Hið sögufræga hús, Tún þar sem nú er starfrækt félagsmiðstöð og frístundaheimili. Mynd/epe
Hið sögufræga hús, Tún þar sem nú er starfrækt félagsmiðstöð og frístundaheimili. Mynd/epe

Ungmennaráð Norðurþings fjallaði um félagsmiðstöð ungmenna í Túni á fundi sínum þann 21. mars síðastliðinn. Fjallað var um hvort það þætti fýsilegur kostur að flytja félagsmiðstöðina í annað húsnæði.
í bókun fundarins kom fram að ungmennaráð teldi það góða lausn að starfsemi félagsmiðstöðvarinnar yrði flutt yfir í húsnæði Framhaldsskólans á Húsavík (FSH).

Æskulýðs- og menningarnefnd Norðurþings tók undir með ungmennaráði á fundi nefndarinnar í gær, þriðjudag og felur íþrótta- og tómstundarfulltrúa að ganga til samninga við FSH um leigu á húsnæði fyrir starfsemina.

„Þetta er búið að vera í skoðun lengi og það sem endanlega kláraði málið var að ungmennaráð var spurt álits um það að flytja starfsemina upp í Framhaldsskólann,“ segir Kjartan Páll Þórarinsson, tómstunda- og æskulýðsfulltrúi hjá Norðurþingi. „Ég er búinn að ræða þetta við Framhaldsskólann og við erum búin að sjá fyrir okkur hvaða rými gæti verið notað. Næsta skref yrði þá að leigja það af FSH.“ Um er að ræða kjallararými skólans en Kjartan telur að það ætti að ganga upp miðað við hvernig rýmið er alla jafnan notað af skólanum.

Bókun ungmennaráðs Norðurþings má lesa hér að neðan:

„Ungmennaráð Norðurþings telur það góða lausn að flytja félagsstarf yfir í FSH. Kostirnir við þá lausn eru að húsið er nýrra, snyrtilegra og aðgengi er betra að FSH en Túni.
Tún er húsnæði sem þarfnast mikils viðhalds en þó er gott að eiga sitt eigið húsnæði sem hægt er að gera að persónulegra fyrir þá sem sækja félagsmiðstöðina.“

Starfsemi Frístundaheimilisins Túns í endurskoðun

Einnig var á fundi æskulýðs- og menningarnefndar tekið fyrir minnisblað sem unnið var af íþrótta- og tómstundarfulltrúa um starfsemi frístundarheimilisins Túns. Um er að ræða frístundavistun eftir skólatíma fyrir börn í 1-4 bekk grunnskóla.

Starfsemi heimilisins hefur verið í endurskoðun um nokkurt skeið sérstaklega hvað varðar framtíðarhúsnæði undir starfsemina. „Það er ekki búið að ákveða neitt annað en að frístund verði áfram í Túni. Það eru ýmsar hugleiðingar um húsnæðisflutninga en ekki búið að ákveða neitt í þeim efnum eins og staðan er núna,“ segir Kjartan Páll og bætir við: „Það er búið að taka allan hringinn á þessum málum og auðvitað er upphaf og endir þess að Tún er komið á mikið viðhald og það er ekkert fjármagn áætlað í það á þessu ári.“

Þá hefur æskulýðs- og menningarnefnd falið íþrótta- og tómstundafulltrúa að auglýsa eftir forstöðumanni frístundar í fullt starf á heilsársgrundvelli. Fyrsta verkefni forstöðumanns væri að endurskipuleggja starfsemi frístundar.

Bókun nefndarinnar má sjá hér að neðan:

Æskulýðs- og menningarnefnd felur Íþrótta- og tómstundafulltrúa að vinna áfram að útfærslu á frístundarstarfi í samræmi við stefnu nefndarinnar.
Nefndin felur Íþrótta- og tómstundarfulltrúa að auglýsa eftir forstöðumanni frístundar sem fyrst í fullt starf á heilsársgrundvelli. Fyrsta verkefni forstöðumanns væri að endurskipuleggja starfsemi frístundar.

 

Nýjast