Verð á félagslegum leiguíbúðum hjá Akureyrarbæ er allt að 50 prósent lægra en gengur og gerist á hinum almenna markaði. Þetta kemur fram á vef RÚV. Þá kemur fram að taprekstur sé á íbúðunum á síðasta ári upp 22,5 milljónir króna. Mikil aðsókn hefur verið eftir íbúðum í félagslega kerfinu og eru dæmi um allt að fjögurra ára bið eftir íbúðum og biðlistar langir.
Sjá einnig: Fjögurra ára biðtími eftir félagslegri íbúð
Einnig kemur fram í frétt RÚV að mun færri fái húsnæðisbætur en áður en bæturnar hafa hækkað. Af 337 leigjendum Akureyrarbæjar hafa 288 rétt á húsnæðisbótum og 114 fá sérstakann húsnæðisstuðning. Fyrir breytingar á húsnæðisbótakerfinu höfðu um 326 af 337 leigjendum rétt á almennum húsnæðisbótum og 255 höfðu rétt á sérstökum húsnæðisbótum.