Farþegum fjölgað mest á Akureyrarflugvelli

Gera má ráð fyrir að farþegafjöldinn um Akureyrarflugvöll taki ennþá stærra stökk í ár vegna millila…
Gera má ráð fyrir að farþegafjöldinn um Akureyrarflugvöll taki ennþá stærra stökk í ár vegna millilandaflugs beint frá Bretlandi.

Rétt um 25 þúsund fleiri farþegar fóru um innanlandsflugvellina í fyrra og þar af var aukningin langmest á Akureyrarflugvelli og nam
hún nærri 17 þúsund farþegum. Túristi.is greinir frá þessu. 

Á Reykjavíkurflugvelli fjölgaði far­þegum um liðlega 8 þúsund en á Egilsstöðum um rúmlega tvö þúsund. Hins vegar fækkaði flugfarþegum á öðrum innanlandsflugvöllum álíka mikið og sem nam aukningunni á Egilsstöðum. Þetta kemur fram í flugtölum Isavia sem ná aftur til ársins 2011 en í þeim er umferðin eftir minni flugvöllunum tekin saman í eina stærð.

Í heildina nam farþegafjöldinn á innanlandsflugvöllunum rétt um 822 þúsundum í fyrra en til samanburðar var hann nærri 835 þúsund árið 2011. Aukningin á Akureyrarflugvelli í fyrra var um helmingi meiri en árið á undan og þar með fór fjöldi flugfar­þega fyrir norðan á ný yfir 200 þúsund en það gerðist síðast árið 2011. Í febrúar í fyrra hófst nýtt áætlunarflug Air Iceland Connect milli Akureyrar og Keflavíkur, í tengslum við millilandaflug, sem skýrir væntanlega hluta af þessari miklu aukningu fyrir norðan, segir á Túristi.is.

Gera má ráð fyrir að farþegafjöldinn þar taki ennþá stærra stökk í ár enda stendur nú breska ferðaskrifstofan Super Break fyrir beinu leiguflugi frá nokkrum breskum borgum til Akureyrar.

Nýjast